Ársskýrsla Festi
2020

Forsíðu mynd

Starf­sse­mi Festi

Hlutverk

Festi hf. er eignarhaldsfélag fimm rekstrarfélaga og snýr starfsemi félagsins að fjárfestingum og stoðþjónustu við rekstrarfélög sín, Bakkann vöruhótel, ELKO, Festi Fasteignir, Krónuna og N1.

Meginhlutverk Festi hf. er að styðja rekstrarfélögin við virðisinnlausn í daglegum rekstri. Félagið veitir þeim stoðþjónustu á sviði fjármála, mannauðsmála, upplýsingatækni, umsjónar og reksturs fasteigna og gæða- og öryggismála.

Framkvæmdastjórn Festi hf. er hluti af yfirstjórn rekstrarfélaga og tekur þátt í mánaðarlegum framkvæmdastjórnarfundum ásamt því að fulltrúar Festi skipa stjórnir rekstrarfélaganna.

Festi hf. stýrir jafnframt fjárfestingum samstæðunnar og sinnir upplýsingagjöf til almennings og fjárfesta.

Markmið

Festi hf. á að stýra fjárfestingum samstæðunnar með virðisaukandi hætti og styðja við virðisinnlausn rekstrarfélaga samstæðunnar með framúrskarandi og hagkvæmri stoðþjónustu.

Gildi félagsins og stefna um samfélagslega ábyrgð

Það er stefna félagsins að vera í forystu til framtíðar, liður í því er að vera samfélagslega ábyrg. Samhliða ársreikningi verður gefin út samfélagsskýrsla samkvæmt ESG Reporting Guide 2.0, febrúar 2020. Með skipulögðum og viðurkenndum aðgerðum er kappkostað að lágmarka umhverfisáhrif af starfsemi félagsins. Festi fékk Jafnlaunavottun VR þann 19. júní 2015 og eru öll dótturfélög með jafnlaunvottun samkvæmt ÍST 85:2012. Það staðfestir að hjá félaginu er starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf ekki mismunað í launum. Árlega leitar fjöldi félagasamtaka, stofnana og einstaklinga til félagsins um stuðning við góð málefni. Festi leggur áherslu og forvarnar- og íþróttastarf. 

Gildi félagsins og stefna um samfélagslega ábyrgð

Það er stefna félagsins að vera í forystu til framtíðar, liður í því er að vera samfélagslega ábyrg. Samhliða ársreikningi verður gefin út samfélagsskýrsla samkvæmt ESG Reporting Guide 2.0, febrúar 2020. Með skipulögðum og viðurkenndum aðgerðum er kappkostað að lágmarka umhverfisáhrif af starfsemi félagsins. Festi fékk Jafnlaunavottun VR þann 19. júní 2015 og eru öll dótturfélög með jafnlaunvottun samkvæmt ÍST 85:2012. Það staðfestir að hjá félaginu er starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf ekki mismunað í launum. Árlega leitar fjöldi félagasamtaka, stofnana og einstaklinga til félagsins um stuðning við góð málefni. Festi leggur áherslu og forvarnar- og íþróttastarf. 

VIRÐI

HAGKVÆMNI

TRAUST

VIRÐI

HAGKVÆMNI

TRAUST

Forsíðu mynd
Forsíðu mynd

ELKO

ELKO opnaði fyrstu verslun sína í febrúar 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi í sölu raftækja á Íslandi.  Félagið er stærsta raftækjaverslun landsins og rekur fimm verslanir í dag ásamt einni stærstu vefverslun landsins. Verslanir ELKO eru staðsettar í Lindum, Skeifunni, Granda, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á Akureyri.

ELKO kappkostar að bjóða þekkt vörumerki á lágu verði þar sem rík áhersla er lögð á framúrskarandi þjónustu ásamt eftirkaupaþjónustu. Í stefnu fyrirtækisins eru neytendur hafðir í fyrirrúmi og til marks um það má nefna 30 daga skilarétt, verðöryggi, viðbótartryggingu og inneignarnótur án gildistíma sem og verulega lengdan skilarétt í kringum jól og fermingar. Allt eru þetta aðgreinandi þjónustuþættir frá samkeppnisaðilum sem sýna að það sem skiptir viðskiptavini máli, skiptir okkur máli. Þetta er gegnumgangandi loforð sem á bæði við innávið og útávið þar sem markmiðið er að byggja gott langtímasamband við viðskiptavininn.

ELKO er með sérleyfissamning við norska fyrirtækið ELKJÖP sem rekur um 400 verslanir á Norðurlöndunum. ELKJÖP er í eigu breska raftækjarisans Dixons Carphone sem rekur samtals um 1600 verslanir í Bretlandi, Írlandi og Norður-Evrópu. Með sameiginlegum innkaupum fyrirtækjanna nást einstök kjör á þekktum vörumerkjum raftækja og nýtur ELKO þar góðs af.

Remark brand

Það sem skiptir þig máli skiptir okkur máli

Ný stefna innleidd

Árið 2019 hafði ný stefna verið mörkuð og kynnt formlega fyrir starfsfólki. Árið 2020 var svo undirlagt í innleiðingu á nýju stefnunni. Ný stefna ELKO er að miklu leyti þjónustudrifin þar sem markmiðið er að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði. Allir starfsmenn fyrirtækisins taka virkan þátt í innleiðingu á nýrri stefnu og hafa mælingar gefið til kynna að innleiðingarferli hafi gengið einstaklega vel á svo stuttum tíma.

Á árinu var mikil áhersla lögð á stafræna þróun og var fjárfestingarþörf ársins að stórum hluta óefnisleg. Verulegar breytingar voru gerðar á vefverslun ELKO.is þar sem hraðvirkari vefur ásamt nýrri og öflugri leitarvél komu fyrirtækinu í gegnum árið þrátt fyrir þær samkomutakmarkanir sem ríktu í verslunum. 

Verslun ELKO í Flugstöð Leifs Eiríkssonar var breytt, algerlega endurnýjuð og opnuð formlega aftur í júní. ELKO opnaði nýja glæsilega verslun á Akureyri í desember 2020.

Áhrif COVID-19 á ELKO

COVID-19 var gríðarleg áskorun fyrir starfsfólk ELKO og reyndi verulega á þá innviði sem höfðu verið byggðir upp á fyrri árum. ELKO fór ekki varhluta af þeim breytingum sem faraldurinn hafði í för með sér og var algert sölufall í verslunum í flugstöðinni. Sala í öðrum verslunum var langt umfram væntingar og mátti sjá gríðarlegan vöxt í vefverslun.

Framkvæmdir í Leifsstöð gengu vel þar sem flugstöðin var lokuð á framkvæmdatíma. Á Akureyri var 20 manna samkomutakmörkun í miðjum framkvæmdum sem setti strik í reikninginn og seinkaði opnun því um nokkrar vikur.

Árið 2020 var fullt af áskorunum en tókst vel að leysa úr þeim og endaði árið á að vera það besta frá upphafi.

infoBoxIcon

45%

Markaðshlutdeild á raftækjamarkaði

infoBoxIcon

140%

Aukning pantana í vefverslun

infoBoxIcon

7 ár

Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo

infoBoxIcon

2. sæti

Í íslensku ánæguvoginni í flokki raftækjaverslana

Samfélagsábyrgð ELKO

ELKO vinnur eftir fjórum af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og eru ábyrgir viðskiptahættir sem og umhverfis- og loftslagsmál þar í forgrunni.  ELKO leggur áherslu á jafnrétti kynjanna með jafnlaunavottun, jafnlaunastefnu og markvissum aðgerðum til að jafna stöðu allra kynja á vinnustaðnum.

ELKO leggur áherslu á að draga úr neyslu og framleiðslu með því að tryggja að viðskiptavinir kaupi aðeins þær vörur sem henta þeim. 30 daga skilaréttur tryggir að neytendur geta auðveldlega skilað vörum sem ekki henta, en þær eru svo seldar með afslætti til að lágmarka sóun. ELKO leggur áherslu á að styðja við loftslagsmarkmið með því að draga úr losun og kolefnisjafna alla starfsemi fyrirtækisins.

ELKO styrkir fjölmörg verkefni á ári hverju en heildarúthlutanir úr styrktarsjóði fyrirtækisins árið 2020 námu rúmlega 5.000.000 kr. Styrktarsjóður ELKO gegnir sama hlutverki og fyrirtækið sjálft, sem er að hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar tækni.

ELKO leggur mikið upp úr sjálfbærni og hefur fyrirtækið sett sér skýr markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, minnka úrgang frá starfsemi og auka endurvinnslu. Í dag er tekið á móti notuðum raftækjum, ljósaperum, tölvum og símum til endurvinnslu. Fyrirtækið kaupir einnig notuð raftæki í vissum vöruflokkum og kemur þeim í réttan farveg. Eru þau ýmist endurunnin eða yfirfarin af viðurkenndum erlendum aðilum og seld aftur sem notuð vara. Þannig er líftími vörunnar lengdur og dregið úr sóun til að fleiri njóti góðs af.

ELKO gefur út samfélagsskýrslu fyrir árið 2020 sem má lesa í heild sinni hér: Samfélagsskýrsla ELKO.

Forsíðu mynd

Vottanir og verðlaun

ELKO hefur fengið vottun Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki, á hverju ári samfleytt frá árinu 2014. Á árinu 2020 hlaut ELKO einnig tilnefningu Ímark, samtaka markaðsfólks á Íslandi, sem markaðsfyrirtæki ársins og tilnefningu vörumerkjastofunnar Brandr sem Besta íslenska vörumerkið. Fyrirtækið hafnaði í öðru sæti í Íslensku ánægjuvoginni í flokki raftækjaverslana þar sem ELKO fékk 72,8 stig af 100 mögulegum en ekki mældist marktækur munur á milli fyrstu tveggja sætanna.

Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image

Framtíðarhorfur

Innleiðing nýrrar stefnu mun áfram verða fyrirferðarmikil næstu árin enda lykillinn að samkeppnisforskoti til lengri tíma. Áhersla er sett á áframhaldandi fjárfestingu í stafrænni þróun og munu þau verkefni styðja við áform um áframhaldandi vöxt vefverslunar, aukna arðsemi og aukið samtal við viðskiptavini þar sem gagnsæi, traust og góð þjónusta stuðla að langtímasambandi við viðskiptavininn og koma fyrirtækinu nær markmiðum sínum.    

Árið 2021 er ár mannauðsins og ætlar ELKO að vera með ánægðasta starfsfólk á raftækjamarkaði auk ánægðustu viðskiptavinanna. Lögð verður gríðarleg áhersla á þjálfun, stuðning við starfsfólk og uppbyggingu innviða til að viðhalda því til framtíðar.

ELKO starfar á mettuðum markaði þar sem dýrt er að auka markaðshlutdeild. Því eru verkefni til skoðunar á tengdri vöru og þjónustu til að geta stuðlað að heilbrigðum vexti til framtíðar með notkun á núverandi dreifileiðum.

Forsíðu mynd

Krónan

Krónan rekur 26 verslanir undir merkjum Krónunnar og Kr. Loforð Krónunnar er fyrst og fremst að koma réttu vöruúrvali í hendur viðskiptavina á eins ódýran hátt og mögulegt er.

Krónuverslanir hafa verið starfræktar á Íslandi frá árinu 2000. Krónuverslanir má finna í flestum hverfum höfuðborgarsvæðisins og í ýmsum bæjum um landið.

Kr. er smærri Krónuverslun aðlöguð að bæjarfélaginu og stendur Kr. fyrir Krónu. Á sama hátt og tilgangur skammstöfunar er að einfalda og spara tíma er hlutverk Kr. að færa viðskiptavinum fjölbreytt vöruúrval á lægra vöruverði.

 Krónan elskar hollar og ferskar vörur. Þrátt fyrir lágt vöruverð gefur Krónan engan afslátt af ferskleikanum og leitar á hverjum degi leiða til þess að gera úrvalið ferskara, hollara og heilnæmara.

Remark brand

Krónan er lágvöruverslun og leggur áherslu á ferskvöru

Fjórar nýjar Krónuverslanir opnaðar á árinu

Þrátt fyrir heimsfaraldur var ekki slegið við slöku á árinu. Þrjár hefðbundnar Krónuverslanir voru opnaðar, að Norðurhellu í Hafnarfirði, á Hallveigarstíg í miðbæ Reykjavíkur og loks í Austurveri, í stað síðustu Nóatúns verslunarinnar. 

Þá var Snjallverslun Krónunnar opnuð löngu á undan áætlun. Krónan naut þar stuðnings viðskiptavina sem tóku þátt í að þróa verslunina áfram. Síðast en ekki síst lagði af stað minnsta Krónubúðin en mögulega með stærsta hjartað - Krónuhjólið sem ferðaðist á milli götuhátíða síðastliðið sumar með hollustuúrval fyrir stóra og smáa.

Í október hætti Krónan að hafa plastburðarpoka á boðstólum, fyrst matvöruverslana. Fyrir lá að löggjöf tæki gildi í upphafi árs 2021 sem legði bann við slíkum pokum en Krónan ákvað að klára birgðir af sykurreyrspokum sínum og einblína eftir það einvörðungu á burðarpoka úr pappír og fjölnota poka. Á þessum þremur mánuðum spöruðust meira en milljón plastburðarpokar.

Hjá Krónunni starfa um 960 einstaklingar og eru margir þeirra að stíga sín fyrstu skref á atvinnumarkaði. Það er því mikilvægt að standa vel að fræðslu starfsfólks og á árinu hóf göngu sína Krónuskólinn - fræðsluapp fyrir starfsmenn. Í appinu eru stutt og hnitmiðuð myndbönd sem hjálpa nýju starfsfólki að taka sín fyrstu skref í Krónunni sem og öllu starfsfólki að auka við og sækja sér þekkingu.

Nýsköpun og efling íslenskrar matvælaframleiðslu skiptir Krónuna miklu máli. Á árinu var farið í samstarf við Samtök smáframleiðenda matvæla en innan þeirra eru um 75 framleiðendur. Hafist var handa við að hanna sérstaka innréttingu til að stilla fram vörum smáframleiðenda og byrjaði verkefnið í Krónuverslunum á Granda, í Lindum og á Selfossi en flakkar nú á milli Krónuverslana. Hvert sölutímabil er 2 mánuðir og taka um 20 smáframleiðendur þátt hverju sinni.

Áhrif COVID-19 á Krónuna

COVID-19 hafði óneitanlega mikil áhrif á rekstur Krónunnar og að mörgu að huga. Mikið var lagt upp úr sóttvörnum í verslunum enda verkefnið fyrst og fremst að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsmanna. Þá gætti ótta í upphafi faraldursins við mögulegan vöruskort og var Krónan ötul að upplýsa um að engin raunveruleg merki væri að finna um slíkt enda birgðastaða hjá birgjum góð. Við töldum líka mikilvægt, fyrir þá sem kusu að bæta birgðastöðu heimilisins, að miðla hollari kostum með langan líftíma, enda ávallt með hugann við lýðheilsu. Þegar óvissuástand er mikið er upplýsingagjöf fyrirtækja enn mikilvægari, bæði út á við og inn á við.

Óneitanlega reyndi mikið á starfsfólkið, enda verslunarfólk hluti af framlínunni í faraldrinum. Starfsfólk í framlínu fékk aukinn stuðning, álagsgreiðslur og sálfræðihjálp. Samkvæmt vinnustaðagreiningu var 81% starfsfólks ánægt með viðbrögð fyrirtækisins við COVID-19.

Heildaránægja starfsfólks var 4,28 af 5 á árinu sem er marktækt hærra en hjá öðrum sambærilegum fyrirtækjum. Hækkunin var um 0,12 frá síðustu könnun.

Viðskiptavinir Krónunnar voru enn líklegri en áður til að mæla með Krónunni vegna stærðar verslana og öflugra sóttvarnaraðgerða starfsfólks.

infoBoxIcon

26

Matvöruverslanir

infoBoxIcon

Svansvottun

Fyrsta verslunarkeðjan á Íslandi

infoBoxIcon

4 ár

Ánægðustu viðskiptavinirnir á matvörumarkaði

infoBoxIcon

4,28

Heildaránægja starfsfólks

Samfélagsábyrgð Krónunnar

Krónan leikur stórt hlutverk í samfélaginu. Við gerum okkur grein fyrir að í krafti stærðar okkar getum við haft áhrif til góðs og þess vegna erum við sífellt að leita leiða til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki. Við reynum líka að draga úr umhverfisáhrifum, bjóða upp á heilsusamari valkosti og efla lýðheilsu, í samstarfi við viðskiptavini okkar. Þannig leggjum við okkar lóð á vogaskálarnar í baráttunni um betri heim.

Við leggjum áherslu á að minnka matarsóun, draga úr umbúðum, gefa hollustunni besta plássið og auka úrvalið af grænkeravörum og annarri matvöru sem hefur minni áhrif á umhverfi og náttúru en aðrir valkostir.

Umhverfismál, lýðheilsa og upplýst val skipta okkur máli.

Styrktarsjóður Krónunnar hefur það að markmiði að efla lýðheilsu barna og veitir styrki á hverju ári til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu samfélagsins í nærsamfélögum Krónunnar. Auglýst er eftir styrktarumsóknum á vorin og úthlutað er úr sjóðnum á haustin fyrir komandi styrktarár. Krónan veitir um hver jól styrki til góðgerðasamtaka sem sjá um matarúthlutanir fyrir hátíðirnar. Í ár lögðu viðskiptavinir Krónunnar einnig sitt af mörkum til matarúthlutana í sínu nærumhverfi fyrir jólin með því að hækka matarkörfuna á afgreiðslukassa um 500 kr.

Krónan gefur út samfélagsskýrslu fyrir árið 2020 sem má lesa í heild sinni hér: Samfélagsskýrsla Krónunnar.

Forsíðu mynd

Vottanir og verðlaun

Viðskiptavinir Krónunnar eru ánægðustu viðskiptavinirnir á matvælamarkaði fjórða árið í röð samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar.  Krónan fékk 74,2 stig af 100 mögulegum með marktækum mun.

Krónan fékk einnig tilnefningar til verðlauna á árinu. Krónan var tilnefnd eitt af fimm markaðsfyrirtækjum ársins af ÍMARK, samtökum markaðsfólks á Íslandi fyrir framúrskarandi árangur í markaðsmálum undanfarin tvö ár.

Félag viðskipta- og hagfræðinga veitti svo Krónunni viðurkenningu á árinu, eftir tilnefningu til Þekkingarverðlauna, fyrir að skara fram úr á sviði sjálfbærrar þróunar.

Allar verslanir Krónunnar hafa hlotið Svansvottun. Kröfur Svansins fyrir dagvöruverslanir ná yfir umhverfisþætti í rekstri verslana, svo sem matarsóun og flokkun úrgangs, orkunotkun, og framboð lífrænna og umhverfisvottaðra vara.

Í lok árs 2019 hlaut Krónan Svansvottun á verslanir sínar við Akrabraut og Rofabæ og voru það fyrstu verslanirnar á Íslandi sem hlotið hafa Svansvottun. Ári síðar var lokamarkmiðinu náð með vottun allrar keðjunnar.

Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image

Framtíðarhorfur

Árið 2021 hefst með krafti og horfum við til þess full af bjartsýni með metnaðarfullum markmiðum. Með nýjum verslunum og aukningu á sölu í gegnum Snjallverslun Krónunnar horfum við fram á enn eitt spennandi árið hjá Krónunni. Lögð verður enn meiri áhersla á ferskvöru, ávexti og grænmeti sem og fljótlegar en hollar lausnir sem einfalda líf viðskiptavina okkar.

Við munum setja lýðheilsu á dagskrá sem aldrei fyrr, prófa okkur áfram með umbúðalausar vörur í samtali og samstarfi við birgja og viðskiptavini, og minnka matarsóun enn frekar. Við vitum og höfum reynslu af því að með samtali koma bestu hugmyndirnar fram. Því munum við efla enn frekar samtal okkar við viðskiptavini um allt sem snýr að starfsemi okkar og leita leiða til að gera enn betur í að mæta þeirra þörfum.

Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Forsíðu mynd

N1

N1 er orkusali Festi samstæðunnar og sér fólki og fyrirtækjum fyrir eldsneyti, raforku, rekstrarvörum, veitingum og afþreyingu á þjónustustöðvum félagsins um allt land. Hlutverk N1 er að halda samfélaginu á hreyfingu með persónulegri þjónustu og markvissu vöruúrvali sem uppfyllir kröfur viðskiptavina hvert sem ferð þeirra er heitið.

N1 sparar viðskiptavinum bæði tíma og fyrirhöfn með þéttu neti þjónustustöðva og umbunar þeim með margvíslegum ávinningi af viðskiptunum, m.a. með N1 kortinu sem safnar punktum er nýtast á N1 stöðvum um land allt.

N1 starfar út frá þremur grunngildum sem eru: virðing, einfaldleiki og kraftur. Við sýnum hvert öðru virðingu, veitum þjónustu sem við getum verið stolt af og berum virðingu fyrir umhverfinu. Við leggjum okkur fram við að einfalda líf viðskiptavina okkar og liðsinna með góðu aðgengi að vörum okkar og þjónustu. Við hleypum krafti í samfélagið með öflugri dreifingu og afgreiðslu eldsneytis en einnig með stuðningi við hreyfingu, heilsubót og góð málefni sem auðga mannlífið.

Vel staðsettar þjónustustöðvar og verslanir um land allt, fyrsta flokks dekkja- og smurþjónusta og öflug fyrirtækjaþjónusta gera N1 að sterkri heild sem er mikilvægur hluti af íslensku samfélagi.

Remark brand

N1 - Þjónusta alla leið

Krefjandi ár

Árið 2020 fór vel af stað og voru horfur fyrir rekstur félagsins góðar þangað til í mars er áhrifa af COVID-19 fór að gæta á reksturinn.

Miklar samkomutakmarkanir bæði um vorið og svo aftur um haustið höfðu veruleg áhrif á selt magn bifreiðaeldsneytis og flugeldsneytis og þar af leiðandi tekjur og afkomu félagsins. Tilslakanir um sumarið gerðu það að verkum að reksturinn var góður um tíma og öflugt þjónustunet N1 nýttist gríðarlega vel þegar Íslendingar ferðuðust vítt og breitt um landið.

Íslensk Orkumiðlun varð að dótturfélagi N1 árið 2020 og styrkir það félagið verulega til framtíðar og undirstrikar þá umbreytingu N1 að verða orkufélag. Á síðastliðnu ári voru um 17% af allri orku sem N1 seldi raforka og mun það hlutfall aukast verulega á komandi árum.

Kaup N1 á rekstri Íseyjar Skyrbara styrkir stöðu félagsins í hollari valkostum í veitingum fyrir fólk á ferðinni. Hefur þessi viðbót við vöruframboð N1 mælst virkilega vel fyrir hjá viðskiptavinum félagsins.

Fyrirtækjaþjónusta N1 er öflug og hélt vel velli á síðastliðnu ári þrátt fyrir áföll hjá ferðaþjónstufyrirtækjum á landinu. Fjölbreytt vöruúrval og góð fjölbreytni í viðskiptavinahópi félagsins kom sér vel og dró úr áhrifum COVID-19 á fyrirtækjaþjónustuna.

Bílaþjónusta N1 er einnig gríðarlega öflug og gekk vel þrátt fyrir áföll hjá stórum viðskiptavinum í ferðaþjónustunni. Frábær þjónusta og gott vöruval hefur styrkt stöðu N1 enn frekar á hjólbarðamarkaðinum á Íslandi og sífellt fleiri viðskiptavinir kjósa að eiga viðskipti við N1.

Áhrif COVID-19 á N1

Áhrif COVID-19 á rekstur N1 voru umtalsverð á síðasta ári. Öflugt þjónustunet fyrirtækisins sem þjónustar fólk og fyrirtæki á ferðinni fann fyrir þeim samkomutakmörkunum sem giltu frá marsmánuði og út árið. Umferð á vegum landsins dróst meira saman en áður hefur sést í mælingum og hafði það veruleg áhrif á sölu eldsneytis á bifreiðar. Erlendum ferðamönnum sem heimsóttu Ísland fækkaði verulega sem hafði neikvæð áhrif á sölu á eldsneyti til bílaleiga og hópferðabíla. Einnig hafði gríðarlegur samdráttur í flugsamgöngum áhrif á magn af seldu flugeldsneyti til flugfélaga.

Fækkun erlendra ferðamanna varð jafnframt vart á þjónustustöðvum N1 en hins vegar kom ferðagleði Íslendinga sl. sumar sér vel fyrir félagið enda heimsóttu fjölmargir landsmenn þjónustustöðvar félagsins yfir sumartímann.

Kaup á Íslenskri orkumiðlun

Þann 1. mars 2020 undirritaði Festi samning um kaup á öllu hlutafé í Íslenskri orkumiðlun ehf. (ÍOM). Íslensk orkumiðlun ehf. var stofnuð í janúar 2017 og fékk leyfi til að stunda raforkuviðskipti 16. febrúar. Raforkusala hófst síðan 1. júlí 2017.

Allt rafmagn sem ÍOM selur kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum, annaðhvort vatnsafli eða jarðvarma. Markaðshlutdeild félagsins er tæplega 7% þó að það hafi aðeins verið með starfsemi í þrjú ár og sýnir það sterka stöðu fyrirtækisins. Af því rafmagnsmagni sem skipti um orkusala á árinu 2018 fóru 42% til ÍOM og 75% af því orkumagni sem flutti sig árið 2019. Félagið hafði rekstrartekjur upp á tæplega 1,4 milljarða á síðasta ári og jukust rekstrartekjur um ríflega 45% á milli ára. Viðskiptavinir í sjávarútvegi eru stærstu viðskiptavinir félagsins.

N1 er orkusali FESTI samstæðunnar og því tilheyrir starfsemi ÍOM N1. N1 bætti þannig við þá sölu sem fyrir var, annars vegar jarðefnaeldsneytis og hins vegar endurnýjanlegra orkugjafa, bæði til fyrirtækja og almennings. N1 ætlar sér að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi. N1 keypti Hlöðu á árinu 2019 og með kaupum á ÍOM er N1 með alla innviði til að taka fullan þátt í raforkusölu og geta t.a.m. þjónustað rafbílaeigendur bæði með búnað og raforku.

infoBoxIcon

75.000

Þátttakendur í sumarleik N1

infoBoxIcon

17%

Raforkusala af heild í Megajoules

infoBoxIcon

32.000

Sendingar frá vefverslunum í gegnum Dropp á þjónustustöðvum N1

infoBoxIcon

40.000

Bílar umfelgaðir á árinu

Samfélagsábyrgð N1

N1 vinnur eftir sex heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem snerta starfsemi félagsins mest til þess að auka enn frekar áherslur á ábyrga viðskiptahætti og umhverfis- og loftslagsmál. N1 leggur áherslu á jafnrétti kynjanna með jafnlaunavottun og jafnlaunastefnu.

Samfélagsleg ábyrgð skiptir miklu máli í starfsemi N1. Fyrirtækið hefur unnið að því að auka samfélagslega ábyrgð í aðfangakeðjunni með margvíslegum hætti á undanförnum árum. Það er sjálfsagður hluti af samfélagslegri ábyrgð N1 að umhverfið beri ekki skaða af starfseminni en auk þess að vera leiðandi í þjónustu hefur fyrirtækið verið leiðandi í umhverfisvænum lausnum á eldsneytismarkaði með sölu á metani og rafmagni. Það er áskorun að finna og bjóða upp á umhverfisvænni valmöguleika í margbreytilegu vöruúrvali N1 og að þjóna með þeim hætti þörfum viðskiptavina ekki síður en umhverfisins.

N1 hefur fengið sérstök verðlaun frá Creditinfo fyrir samfélagsábyrgð fyrirtækisins.  

Í stuðningi sínum við samfélagið leggur N1 áherslu á að styrkja og styðja við barna- og unglingastarf íþróttafélaga víðsvegar um landið. N1 studdi á árinu við tæplega 30 íþróttafélög og var bakhjarl KSÍ auk fjölmargra golfklúbba. Grasrótarstuðningur skiptir félagið miklu máli en það gefur mikinn innblástur að fjármunum þess sé varið í að byggja upp stjörnur framtíðarinnar.                                                                      

Jólastyrkur N1 2020 fór í þrjú góð málefni: Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Frú Ragnheiði og Fjölskylduhjálp Íslands. Þar voru fjármunir vel nýttir til að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í neyð.                                                          

Jafnt og þétt yfir árið er veittur fjöldi styrkja til góðgerðarmála. Einnig eru veittir styrkir í formi gjafa í ýmiss konar fjáraflanir t.a.m. skóla, leikskóla, björgunarsveita o.fl. aðila.

Jafnframt var tekin ákvörðun um að styðja enn frekar við starfsemi BUGL og sjá áfram um rekstur bílaflota þeirra á árinu 2020. Stuðningurinn felur í sér rekstur tveggja bíla sem notaðir eru til að fara með skjólstæðinga BUGL í ýmsar ferðir en einnig til að vettvangsteymi geti sótt fjölskyldur heim og unnið með börnum í þeirra nærumhverfi.

N1 gefur út samfélagsskýrslu fyrir árið 2020 sem má lesa í heild sinni hér: Samfélagsskýrsla N1

Forsíðu mynd

Vottanir og verðlaun

Átján þjónustustöðvar N1 eru vottaðar samkvæmt umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001 og öll hjólbarðaverkstæði N1 eru vottuð Michelin Quality dealer. Frá árinu 2014 hefur N1 unnið samfélagsskýrslur um starfsemi sína. N1 var kosið fyrirmyndarfyrirtæki af Creditinfo í fimm ár í röð frá árinu 2015.

Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image

Framtíðarhorfur

Framtíðarhorfur N1 eru góðar. Fyrirtækið býr yfir gríðarlega öflugu þjónustu- og dreifineti fyrir sínar vörur og þjónustu. Þjónustunetið mun nýtast félaginu vel þrátt fyrir orkuskipti í samgöngum sem verða á næstu árum. Með kaupunum á Íslenskri Orkumiðlun er N1 orðinn virkur þátttakandi á raforkumarkaði og ætlar sér stóra hluti þar til framtíðar. Með kaupunum hefur enn styrkari stoðum verið skotið undir rekstur félagsins til framtíðar. N1 vinnur að uppsetningu rafhleðslustöðva um landið og munu þær ásamt fjölbreyttu vöruúrvali enn frekar gera þjónustustöðvar N1 að fyrsta valkosti fólks á ferð um landið.

Á þjónustustöðvum félagsins er boðið upp á fjölbreytta valkosti í veitingum og aukin áhersla lögð á hollari valkosti. Kaup félagsins á rekstri Íseyjar Skyrbara á stöðvum N1 hefur mælst vel fyrir meðal viðskiptavina félagsins og undirstrika þá stefnu N1 að bjóða upp á hollari valkosti.

Fyrirtækjaþjónusta N1 er mjög öflug og er sífellt verið að leita leiða til að styrkja þá þjónustu enn frekar. Nýverið var vefverslun opnuð sem miðar að því að þjónusta fyrirtæki enn betur en gert er í dag. Mörg þúsund fyrirtæki vítt og breitt um landið kjósa að eiga viðskipti við N1 í hverjum mánuði og er það markmið félagsins að þjónustu viðskiptavini vel og einfalda þeim lífið.

Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Grid Image
Forsíðu mynd

Bakkinn

Bakkinn vöruhótel rekur tvö vöruhús, í Skarfagörðum og Klettagörðum, sem sérhæfa sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini sem kjósa að úthýsa vöruhúsastarfsemi sinni að einhverju eða öllu leyti. Starfsemi Bakkans er mikilvægur hlekkur í aðfangakeðju samstæðu Festi sem tryggir örugga geymslu og skilvirka dreifingu á vörum til viðskiptavina.

Boðið er upp á hágæða þjónustu til þeirra sem vilja úthýsa vöruhúsaþjónustu og dreifingu að hluta eða öllu leyti. Lögð er mikil áhersla á skilvirkni í þjónustu og hagkvæmni í ferlum. Vandað gæða- og öryggiseftirlit er fyrir hendi sem endurspeglar gildi Bakkans;  Þjónusta – Gæði - Öryggi.

Remark brand

Alhliða vöruhúsaþjónusta og dreifing – alla leið

Breytt verklag vegna COVID-19

COVID-19 heimsfaraldurinn hafði umtalsverð áhrif á viðskiptavini Bakkans á árinu 2020 en salan jókst hjá þeim flestum. Aðgerðir stjórnenda miðuðu að því að halda uppi framleiðni ásamt því að tryggja öryggi starfsmanna. Vegna samkomutakmarkana þurfti að loka fyrir aðgengi til afhendingar beint úr vöruhúsum á tímabili og brást félagið við með heimsendingum á meðan það stóð yfir. Þá þurfti að skipta upp starfseminni í sóttvarnarhólf og vinna á fleiri vöktum með auknum tilkostnaði. Algjör sprenging varð í vefverslun á árinu en það setti mikla pressu á skilvirkni í afhendingum sem stundum var erfitt að ráða við vegna samkomutakmarkana stjórnvalda. Á árinu 2020 var unnið að innleiðingu nýs vöruhúsakerfis sem mun bæta þjónustu og lækka einingakostnað. Innleiðingunni mun ljúka á árinu 2021.

Áhrif COVID-19 á Bakkann

Ein af helstu áskorunum Bakkans á árinu var að aðlaga starfsemina að sóttvarnarreglum sem settar voru hverju sinni og halda starfseminni gangandi. Aukin sala viðskiptavina Bakkans skilaði einnig auknu álagi á vöruhúsin og til þess að halda fjöldatakmörkunum starfsmanna og viðskiptavina í vöruhúsunum var brugðið á það ráð að lengja opnunartímann og skipta húsunum niður í sóttvarnarhólf. Þessar áherslur skiluðu því að smit hjá Bakkanum voru í lágmarki og höfðu lítil sem engin áhrif á starfsemina.

infoBoxIcon

9,5

Kílómetrar af hillurekkum

infoBoxIcon

12

Tölvustýrðir hilluturnar

infoBoxIcon

23.000

Samtals fermetrar vöruhúsa

infoBoxIcon

32.000

Bretti

Samfélagsábyrgð Bakkans

Félagið hefur til fjölda ára leitast við að sýna samfélagslega ábyrgð í verki og minnka sóun í allri sinni starfsemi. Á árinu 2020 hóf Bakkinn að móta sérstök markmið í samfélagslegri ábyrgð og samræma þau við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í samræmi við kjarnastarfsemi sína:  Í framhaldinu var ákveðið að gefa út sérstaka samfélagsskýrslu fyrir Bakkann þar sem sett eru fram skilmerkileg markmið til framtíðar.

Bakkinn hefur valið að einbeita sér að heimsmarkmiðum númer 5, 10, 12 og 13, en þau standa fyrir jafnrétti kynja, aukinn jöfnuð, ábyrga neyslu og framleiðslu og aðgerðir í loftlagsmálum. Umhverfismál eru gríðarlega mikilvæg í starfsemi Bakkans en lögð hefur verið áhersla á að minnka kolefnissporin. Beinni losun hefur verið kolefnisjafnað frá kjarnastarfseminni til nokkurra ára í gegnum móðurfélagið Festi. Á árinu 2019 var kolefnislosun Bakkans samtals 159,5 tCO2 en félagið kolefnisjafnaði losun frá umfangi 1, eða alls 87,7 tCO2 með gróðursetningu sem samsvarar 880 trjáa í gegnum Kolvið. Bakkinn ákvað að setja sér loftslagsmarkmið á árinu í því augnamiði að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjafna losun félagsins af eigin starfsemi.

Bakkinn gefur út samfélagsskýrslu fyrir árið 2020 sem má lesa í heild sinni hér: Samfélagsskýrsla Bakkans.

Forsíðu mynd

Framtíðarhorfur

Þarfir viðskiptavina breyttust á árinu 2020 með tilkomu COVID-19 og sýndi Bakkinn mikla aðlögunarhæfni og viðbragðshraða til að svara þeim kröfum. Sveiflur í fjölda afhendinga frá einum tíma til annars eru mögulega komnar til með að vera. Með innleiðingu nýs vöruhúsakerfis og frekari fjárfestingu í sjálfvirkni mun Bakkinn geta boðið viðskiptavinum sínum lausnir á góðu verði sem ráða betur við slík tilvik og tryggja þannig samkeppnishæfni félagsins til framtíðar þar sem gæði, þjónusta og öryggi gegna lykilhlutverki.

 

Forsíðu mynd

Festi fasteignir

Fasteignarekstur samstæðunnar fer fram í tveimur félögum. Annars vegar í Festi hf. sem á og rekur fasteignir sem tilheyra starfsemi N1 og hins vegar í dótturfélaginu Festi fasteignum ehf. sem á og rekur allar aðrar fasteignir samstæðunnar. Festi fasteignir sérhæfir sig í útleigu atvinnuhúsnæðis til félaga í verslunarrekstri og eru fasteignirnar að mestu leyti í útleigu til dótturfélaga Festi. Starfsmenn halda utan um allar framkvæmdir á fasteignum og lóðum samstæðunnar hvort sem er í viðhaldsverkefnum eða nýfjárfestingum. Fasteignastarfsemin er rekin með það að markmiði að fjárbinding í fasteignum sé arðbær og styðji við kjarnastarfsemi samstæðunnar.

Heildarfjöldi fasteigna í eigu samstæðunnar í árslok 2020 var 93 og eru þær samtals um 106 þúsund fermetrar. Nýtingarhlutfallið er 97% en 85% af fermetrafjöldanum er notað fyrir eigin rekstur.

Remark brand

Útleiga og rekstur fasteigna til félaga í atvinnurekstri

Miklar nýfjárfestingar á árinu

Unnið var að fjölmörgum endurbótum og nýfjárfestingum á árinu en þessar voru helstar:

Í byrjun árs var lokið við gagngerar endurbætur á þjónustustöð N1 á Höfn í Hornafirði. Endurbæturnar fólu meðal annars í sér að bæta aðstöðu viðskiptavina og starfsfólks. Í mars var lokið við að setja upp nýjar verslanir ELKO í komu- og brottfarasal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Um sumarið var lokið við byggingu á nýju 1.500 fermetra atvinnuhúsnæði við Norðurhellu í Hafnarfirði. Við hönnun og byggingu húsnæðisins var haft í huga að lágmarka rekstrarkostnað og kolefnisspor starfseminnar í fasteigninni. Krónan opnaði verslun í húsnæðinu í október og N1 opnaði fjölorkustöð á lóðinni á svipuðum tíma. Hluti húsnæðisins er síðan í útleigu til þriðja aðila.

Lokið var við uppsetningu á tveimur nýjum verslunum Krónunnar í Reykjavík. Verslun Nóatúns í Austurveri var breytt í Krónuverslun og voru allsherjar endurbætur gerðar á húsnæðinu. Þá var Super1 verslun á Hallveigarstíg breytt í Krónubúð. Endurbæturnar á báðum verslunum voru framkvæmdar með vörumerki og markmið Krónunnar í huga. Það felur meðal annars í sér að verslanir Krónunnar eru Svansvottaðar og er einn þáttur þess að lágmarka orkunotkun í rekstri. Öll hönnun og uppsetning verslana tekur mið af því.

Ný fyrirtækjaverslun N1 var opnuð í endurbættu húsnæði við Glerárgötu á Akureyri í lok sumars. Í framhaldinu voru gerðar stórfelldar endurbætur á húsnæðinu við Tryggvabraut sem áður hýsti verslun N1 og var þar opnuð ný verslun ELKO í byrjun desember sl.

Áhrif COVID-19 á Festi fasteignir 

COVID-19 heimsfaraldurinn hafði óveruleg áhrif á starfsemina á árinu. Vanskil á leigugreiðslum voru lítil en framkvæmdir töfðust í einhverjum tilvikum lítillega vegna samkomutakmarkana og seinkana á afgreiðslu vara erlendis frá. Aðlaga þurfti verklag við framkvæmdir í takt við gildandi sóttvarnarreglur hverju sinni og  var framkvæmdasvæðum skipt í sóttvarnarhólf og takmörk sett á samgang starfsmanna á milli verkefna.

infoBoxIcon

93

Eignir í eigu samstæðunnar

infoBoxIcon

97%

Húsnæðis í útleigu

infoBoxIcon

106.000

Samtals fermetrar

infoBoxIcon

85%

Eigin not húsnæðis

Forsíðu mynd

Framtíðarhorfur

Mikil þekking er á fasteignarekstri hjá samstæðunni. Markmiðin eru áfram að leita allra leiða til að reka fasteignir félaganna á sem hagkvæmastan hátt og standa þétt við bakið á stjórnendum við mat á nýjum fjárfestingarkostum.  Áhersla verður lögð á að auka nýtingarhlutfall fasteigna með nýjum leigusamningum og endurnýjun á eldri leigusamningum.

Fyrirhugað er að hefja uppbyggingu á nýju 2.100 m2 verslunarhúsnæði fyrir Krónuna á Akureyri sumarið 2021 og ljúka því verkefni síðla árs 2022.